Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Síðast í mars

Það fer hver að verða síðastur í að uppfæra síðuna sína í marsmánuði.  Ferðin tilbaka úr páskafríinu gekk vel, án seinkanna.  Vorum Leifsstöð í rúma klukkustund og það var alveg nóg... ekki þó að ég mæli með rúmum 10 tímum á Kastrup á leið til 'Islands eins og við upplifðum á 10 ára afmælisdegi Stefáns.  Ferlegt alveg... "slagsmál" um þægileg sæti, slæmt upplýsingaflæði,  stressaður afmælisdrengur sem að ég held nær sér aldrei eftir þetta.  Verðum heldur betur að bæta úr þessu þegar hann verður tvítugur!!   Mæli ekki með því að panta flugfar á afmælisdegi.

Allt í allt frábært páskafrí á 'Islandi, fjölskyldan þyngdist um nokkur kíló eftir að hafa farið í veislu eftir veislu og þrátt fyrir að hafa verið dugleg í sundferðum!!.  Það er búið að kaupa batterí í þrekhjólið og lóðin eru loksins fundin líka. 

Það verður farið í skógarhögg í fyrramálið.  Mannskapur mætir kl. 9 og verður farið í að taka til í skóginum,   brenni að launum.  Við erum ekki einu sinni með ofn en með fleiri hektara af viði!!   ´Mikil þrif í kringum svona brenniofna sem eru nú ansi huggulegir líka!! Kannski ég fái mér einn þegar ég fer virkilega að sjá illa!!

Ciki var ánægð á hundahótelinu, svo við erum búin að bóka pláss fyrir sumarfríið líka.  Það virðist vera að hún hafi misst mjólkina á þessum 10 dögum svo kattaunglingarnir eru ekki hangandi við dyrnar lengur..... hún hefur víst misst aðdráttaraflið að sinni!  Kettirnir höfðu það fínt , en virðast voða ánægðir með að við séum komin aftur heim.


Vetrarsport

Verarsportið er allt að klárast núna ..  Vorum að koma af síðasta lhandboltaeik Stefáns, alla leið frá Toftlund sem er rúmlega klst. keyrsla héðan, rétt hjá landamærunum.  Stefán kláraði með glans, skoraði 2 mörk og spilaði 2 stórgóða leiki. Jóhann á 1 leik eftir, en allur skarinn fer á alvöru handboltaleik í Skjern á miðvikudaginn .  'I kvöld er fimleikasýningin þar sem allir flokkar frá smábörnum upp í öldunga sýna "listir" sínar í rúmlega 3 tíma. Diskótek og kaffi á eftir.  Jóhann og ég tökum þar þátt .. í sýngunni þar að segja, fáum okkur kannski kaffi á eftir. Krossum fingur fyrir að við ruglumst ekki mikið í rútínunum og komum óbrotin heim! 

Slydda

Sumir skrifa oft og mikið, aðrir sjaldnar og minna, enn aðrir aldrei.. er nú með þessari færslu búin að taka framúr nokkrum vinum sem hafa ekki skrifað stakt orð síðan í janúar.  Er nokkuð góð með mig núna, þar sem ég er latur bloggari.  

Vetrarfríið hefði átt að vera núna, því það er ískalt og það var tilrauna-snjókoma í morgun.  Snjó/slydduflygsur í lófastærð hlussuðust niður í 2 x 10 mínútur og bráðnuðu um leið.  Var því miður ekki með myndavél tiltæka þegar krakkarnir þustu út í slydduna í frímínútunum, alsæl á stuttermabolum í úrkomunni.  Það kom þá til tals að það hefur verið svo lítill snjór hér í mörg ár að mörg barnanna hafa ekki upplifað snjókomu hvað þá að hafa prufað að gera snjóbolta, renna sér á snjóþotu eða leikið sér í snjó...  nema að fjölskyldan fari í skíðaferðir í útlöndum.   Ætli þetta sé ekki síðasta snjótilraun vetrarins, vorblómin eru mörg komin upp og blómstra.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband