Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008

Ciki fær heimsókn

ciki og fido januar062

 

Það var fjör í þvottahúsinu í gærkvöldi þegar Fido, 9 vikna, kom í sína fyrstu heimsókn til Ciki, 6 1/2 árs.  Hún tók vel á móti hvolpi og leyfði honum allt... nema að borða matinn.  Hún varð þó þreytt á látunum og tönnunum hvössu á tímabili og skrapp út.  Hann reyndi ekki að drekka hjá henni eins og ég eiginlega bjóst við,  kannski tók hann ekki eftir spenunum (sem kettirnir totta enn, því miðu,, er að minnka þó!)  Hann var allavega fjarska glaður að sjá "mömmu".

 


Sofie frænka

 

Sofie og Jóhann 20.1.08          Sofie og Stefán 20.1Við erum búin að fara að heimsækja litlu frænku sem fær nafnið Sofie. 

 

 


Væta

'Eg hef alveg gleymt að blogga.  Ætli það sé veðrið að fara svona með mig??  Ömurleg rigning eignlega alla daga, mikil eða lítil, alltaf rigning enginn snjór, en það kom þó hörkurok með í dag til tilbreytingar. Er þó að skrökva, það stytti upp og sást til sólar seinnipart þriðjudags 22.1.  Svona til að heiðra ömmu Stínu á stórafmælinu.... "þú hefur verið góð stelpa síðasta árið," eins og þeir segja hér í Danmörkinni ef veðrið er gott á afmælisdaginn.  Þetta eru svona síðbúnar opinberar afmæliskveður, erum náttúrulega búin að hringja, senda sms og mail og allt það.Cool

Það  hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að Danir eru komnir í úrslit. 

DSCF1054  Síðasta mínútan, allt krossað í bak og fyrir.

Komin  i úrslit  Og þeir unnu!!

Ég horfði á síðustu mínúturnar, var annars  of upptekin í  frumraun minni í pípulögnum!! Fór nefnilega í það stóra verkefni að taka eldhúsið í gegn og það gekk vel framan af degi, þangað til ég fór í  að hreinsa vaskinn og rusla/vaskaskápinn.  Það er löng saga sem ég get eiginlega ekki farið út í að segja, því ég veit eiginlega ekki hvernig í ósköpunum þetta gerðist.... en það endaði á því að ég stóð með VATNSL'ASINN í höndunum og það tók mig heilan undanúrslitaleik að púsla þessu saman aftur. Þreif vatnslásinn náttúrlega líka fyrst ég var komin í þessa stöðu á annað borð Tounge Er að vakta uppþvottavélina í skrifuðum orðum.. ferlegt ef allt færi í sundur!!  Nú eru ílát og handklæði inni í skáp til að taka mesta lekann þar til ég get fengið pípara til að koma.   Verst að það verða svo margir hér á morgun = mikið uppvask... en þá er gott að við erum með 2 vaska og aðra uppþvottavél í þvottahúsinu!   'I framtíðinni verð ég bara að kalla á pípara ef það fer að koma skrítin lykt úr ruslaskápnum,,,, reyni ekki að þrífa neitt!!


Spánarhús

Var að lesa þetta á dagblaðavafrinu og varð hugsað til allra sem hafa fjárfest í húsum á Spáni undanfarin ár.  Hverning ætli staðan hjá þeim sé?? Það hlýtur að vera hryllingur að uppgötva að hús manns sé ólöglegt og sjá það rifið niður.  Lítill séns að eigendur fái skaðabætur frá seljendum sem eru örugglega löngu búnir að lýsa sig gjaldþrota.


Frænkan fædd

'I kvöld fæddist litla frænkan sem búið er að bíða eftir heillengi.... eða síðan við vissum að það væri von á stelpu.  Hún kom hratt og örugglega, 9 dögum á undan áætlun, 25 mínútum eftir að foreldrarnir voru komnir á sjúkrahúsið!!  Það var ekki búið að mæla og vigta þegar stoltur pabbinn hringdi með fréttirnar.  Framhald síðar.  


Kattaframhald

Það gengur illa að fá fresskettina af hundaspenunum, olían ógeðslega virkar ekki neitt.  Kettirnir veigra sér aðeins við lyktinni, en láta sig svo hafa það.   Siggý virðist vera hæstánægð með félagsskapinn svo við látum þetta vera í bili.  Hún hlýtur að hætta að mjólka einhverntímann.   En hún fær ekki fleiri kettlinga á spena, ekki ef við fáum að ráða.  'I dag var nefnilega farið með læðuna til dýralæknis og gengið frá því.  Greyið kom til baka öll vönkuð og hissa.  Nú á að halda henni inni í 9 daga, gefa pencilin og verkjalyf og sjá um að hún láti sárið vera, en það gengur illa að halda á henni kraganum. 


Nýtt ár!!

Gleðilegt nýtt ár!!   Við komust heil og höldnu inn í nýja árið.  Hér var frábært veður fyrir flugelda í gærkvöldi. Frost, heiðskýrt og stjörnubjart. Þar sem við vorum í heimsókn var mjög gott útsýni yfir nágrannabæjina svo við fengum aldeilis flotta flugeldasýningu.  Eftir langt og skemmtilegt kvöld var þó varasamt að keyra heim í hálkunni og í gegnum allt flugeldaruslið, sem lá út um allt á sveitavegunum. 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband