30.4.2007 | 19:20
Fíflaslagsmál
Veðrið hefur verið hreint út sagt ótrúlega gott hérna í sveitinni í april. Klukkan er ca. 21. að kveldi 30.apríl, strákarnir úti að hoppa á trampólíni á nærfötunum, svona rétt fyrir svefninn. Fíflarnir hafa blómstrað og milljónir af biðukollum eru um það bil að opna sig og bíða eftir smá hreyfingu á loftinu til að komast á næsta stað. 'Eg fór hamförum með sláttuvélarnar í dag til að reyna að hemja útbreiðsluna eitthvað, vorum búin að gera svo fínt í garðinum. En þetta er vonlaus barátta, fíflarnir eru alls staðar í kringum okkur. Og eru nú skratti fallegir þrátt fyrir allt.
Athugasemdir
Sæl verið þið í Danaveldi. Þið eruð með sumar. Við erum bara með rigningu og rok. Bendi á að Aníta Kristín er flink að fela sig... sjá bloggið mitt. bestu kveðjur..
Sigurður Elvar Þórólfsson, 2.5.2007 kl. 11:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.