10.4.2008 | 20:13
Hauskúpumálið
Mikið rétt, löggan var þarna vegna hauskúpumálsins mikla sem upp kom í gær. Heil síða í dagblaðinu var undirlögð eins og sést hér . Varla þó að um mikin glæp sé að ræða,,, liggur eiginlega ljóst fyrir að gamall líffræðikennari sem bjó þarna árum saman hafi sankað ýmsu svona að sér. Hitti mann í dag sem hafði oft komið þarna og séð alls kyns beinadót úti í verkstæði fyrir mörgum árum... svo hasarinn er búin að þessu leyti, nema að blessað blaðið geti gert sér meiri mat úr þessu.
Athugasemdir
Þetta er bara að verða eins og á suðurnesjum hjá ykkur þarna í Hodde.. blá ljós alla daga..
Passið ykkur á myrkrinu..
Sigurður Elvar Þórólfsson, 16.4.2008 kl. 00:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.