1.6.2007 | 22:37
Dýralíf
Þessa dagana fer mikið fyrir dýralífinu hérna í sveitinni eins og von er um hásumar, eða því sem næst. Starrar og svölur eru í öllum fáanlegum hreiðrum hér í kring, úti í bílskúr, uppi á hlöðulofti og í öllum trjám. Það er svo að það er áhættusamt að hengja út þvott... ekki öruggt að hann komi hreinn inn aftur. Svölurnar þjóta hér um á lágu flugi og ótrúlegt að maður sé ekki búin að fá eina í augað eða eyrað. Frábærir "flugmenn" svölurnar verður að segja.
Það eru víst ekki margir sem geta stært sig af að hafa eina svona í garðinum hjá sér.. eða hvað!?
Kvígan kíkti í heimsókn um helgina, það var smá baks að fá hana inn í girðinguna aftur.. án þess að hinar slyppu út líka. Daginn eftir var flokkurinn, 28 kvígur og 1 naut, flutt suður fyrir garðinn á beitilandið út á engi. Ekki vildi betur til en svo að 2 dögum síðar fer allur hópurinn í ævintýraferð, upp afleggjarann... og reyndi að komast í garðinn okkar líka. Það tókst ekki sem betur fer, en þær náðu að naga nokkra runna. 'Eg var úti í garði þegar ég uppgötva strokið, var ein heima með Stefán og vin hans, sem voru ekki viðlátnir þegar ég þurfti á hjálp þeirra að halda. Það var alger heppni að nágrannarnir voru heima og stukku til og hjálpuðu mér að koma dýrunum í girðunguna aftur. Það tók dágóða stund, það þurfti að skoða svo margt og smakka á ýmsu. Mér leist ekkert á þetta, enda allsendis óvanur kúasmali.
Læðan Lionheart gaut 5 kettlingum í síðustu viku. Hún reyndi að koma sér fyrir inni í fataskáp hjá okkur en skipti um skoðun eftir að hún var uppgötvuð. Daginn eftir var hún orðin léttari og leitin að kettlingunum hófst. Það var ekki fyrr en 3 dögum síðar að Ole fann þá úti á akri, í bæli undir háu grasi. Greinilegt að Lionheart er ung.. vissi greinilega ekkert hvað hún átti að gera!!! Fjölskyldan var flutt upp á heyloft, og Ole klippti á naflastrengina en þrír kettlingar voru flæktir saman. Læðan unga hefur ekki mikið vit á svona löguðu greinilega. 2 kettlingar hafa dáið og hafa verið jarðaðir með töluverðri viðhöfn. 'I dag 1. júní flutti fjölskyldan aftur, nú að frumkvæði móðurinnar. Hún sá sér leik á borði þegar verið var að viðra ganginn og skutlaðist með kettlingana inn í fatahengi, bak við töskur og dót sem þar oft dagar uppi. Ég uppgötvaði það ekki fyrr en þegar Ciki (tíkin á bænum) var að leika sér með gulan hnoðra við dyrnar, mamman Lionheart gerði ekki neitt, horfði bara forviða á lokaða útidyrahurðina. Stefán gerði "hreiður" handa þeim, en fjölskyldan verður flutt aftur upp á loft á morgun.
Jóhann með kettling og Ciki
Hana langar nú voðalega mikið til að leika sér með þá!!!
Athugasemdir
Fínar kisurnar ykkar en passið þið þær þegar afi kemur í heimókn!!!!
Stína á Skaganum=mamma (IP-tala skráð) 5.6.2007 kl. 21:01
Þeir eru nú bara sætastir ...... litlu greyin
Gaman að lesa bloggið þitt Eyrún og tími til komin . Ég verð hér eftir fasta gestur á síðunni og fylgist með - sérstaklega eftir næastu mánaðarmót þar sem þá verður orðið svo langt á milli okkar.
Sjáumst á laugardaginn.
Ásta Laufey (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 05:58
Til Hamingju með daginn frænka ..... vona að þú eigirgóðan dag
Sjáumst á morgunn.
Ásta Laufey (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 19:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.