Nýtt ár!!

Gleðilegt nýtt ár!!   Við komust heil og höldnu inn í nýja árið.  Hér var frábært veður fyrir flugelda í gærkvöldi. Frost, heiðskýrt og stjörnubjart. Þar sem við vorum í heimsókn var mjög gott útsýni yfir nágrannabæjina svo við fengum aldeilis flotta flugeldasýningu.  Eftir langt og skemmtilegt kvöld var þó varasamt að keyra heim í hálkunni og í gegnum allt flugeldaruslið, sem lá út um allt á sveitavegunum. 


Árið

'Eg var að koma inn úr garðinum frá því að grafa niður lauka, síðasti séns á því þar sem á pakkanum stendur að þeir eigi að fara í jörðina á tímabilinu sept-desember.  Gildir jú í dag líka. Það er glimrandi veður, sól, logn og kalt, það var frost í nótt.  Ættu að vera góð skilyrði fyrir flugelda og annað "nýárskrútt"  í kvöld.  Það er búið að pakka stígvélum, útifötum, öryggisgleraugum oþh. fyrir kvöldið, en við verðum ekki heima, aldrei þessu vant.  Bara fínt að vera ekki í matarstandi þetta árið, við eigum bara að sjá um eftirréttinn og kakan er í ofninum.

Vonum að þið komist öll heil inn í nýja árið.

 


Meistarar

Strákarnir hafa verið að keppa á bæjar/sveitarfélags-handboltamótum í gær og í dag.  Það þýðir eldsnemma á fætur í miðju jólafríi!!  Erfitt, enda sváfum við Jóhann yfir okkur í morgum, en náðum þó að vera komin í húsið áður en 1.leikurinn byrjaði.  Hans liði gekk þrumuvel, unnu mótið í sínum aldursflokki.  Stefáns liði gekk líka vel, þeir fengu brons í gær. 

 


12 ára afmæli

Jóhann varð 12 í dag, ótrúlegt en satt.  Við komum honum á óvart og buðum honum og afmælisgestum í go-cart og keilu.  Það vakti mikla lukku, svo var farið á Lundgaard að borða, og borða og borða.  Rúlluðum síðustu gestunum út kl. 21.00 í kvöld

Hér eru nokkrar myndir frá deginum

Jói 12 år 27.dec005

 

 

 5 strákar og ein stelpa á aldrinum 8-12 kepptu

 

 

 

Jói 12 år 27.dec006Þessi frænka var óvart klædd í stíl við staðinn!!

 

 

Afmælisbarnið

Jói 12 år 27.dec009

 

 

 

 

 

Jói 12 år 27.dec040

Allir keppendur og aðrir gestir


Jóladagar

Þá eru jóladagarnir búnir, allir sælir og saddir eftir þá.  Við vorum ein í rólegheitum heima og höfðum það mjög gott. Við fórum í kirkju, maturinn heppnaðist vel og allir fengu pakka við sitt hæfi.    Náðum meira að þessari fínu mynd af jólatrénu í öllu sínu veldi þegar það er nýbúið að kveikja á kertunum.  Við (í felum) bakvið.-)

2007 jól 

Eyddum jóladeginum svo í algerri leti.


Frost

Það er að koma jólastemning á Lundgaard. Hörkufrost og hrím á öllu í dag, mjög fallegt það sem maður getur séð fyrir þokunni!!    Ég er búin að baka eina tegund og er voða góð með mig, ætla að láta það duga held ég.  Það er búið að finna jólaskrautið sem faldi sig úti í fjósi og nokkrir hlutir komnir upp úr kössunum. Jólatrésfóturinn er líka klár, en það á eftir að finna tréð... Ole sér um það.   Feðgarnir settu upp risastórt jólatré á hlaðinu í dag og bökuðu smákökur.  Duglegir.  'Eg fór í jólaerobikk, 3ja tíma törn á sunnudagsmorgni í miðri jólaönninni.  Það var virkilega gaman, við vorum 50 stk.á öllum aldri, 9-70 ára og spreyttum okkur á írskum dönsum, box erobik og rock-n roll dönsum.    'I gær fórum við í jólagjafaleiðangur og keyptum í jólamatinn í leiðinni,,, mikið búið þegar það er gert, bara nokkrar gjafir eftir á listanum!!   Á föstudagskvöldið var jólaball í Tistrup, árlegur viðburður sem  fyrir strákana gengur út á að hlaupa um og vera með hasar, og fá nammipoka. Þeir nenna sko ekki að dansa í kringum jólatréð. Svo ég fékk Eigil og Tinnu lánuð til að vera lögleg á dansgólfinu.  Við foreldrar sitjum annars og´skömmtum peninga, pössum nammipokana,sötrum kaffi og reynum að spjalla yfir hávaðann, sem er erfitt.... og eiginlega bíðum eftir að skemmtuninni ljúki.

Jólakortaframleiðslan er á fullu en vegna tæknilegra örðugleika verða þau á síðasta snúning aftur í ár, vona þó að þó komist í póst allavega fyrir helgina. Svo þið vitið af því þegar ykkur fer að lengja eftir kortinu okkar.  'Eg held bara að við (lesist ég) verðum að byrja á framleiðslunni í september næst, þá er kannski séns að koma þeim út í tíma.

 


kattafæla

Kattabræðurnir 2 eru orðnir ansi aðgangsharðir.  Þeir sitja um hundinn, greyið getur sig ekki hreyft nema að þeir fylgi á eftir bíðandi eftir að hún stoppi svo þeir geti fengið sér sopa.  Nú er víst komið nóg af þessu skrítna sambandi sem við héldum að gengi yfir af sjálfu sér.  En ó nei, það eru liðnar margar vikur og bræðurnir eru orðnir ansi pattaralegir og grófir.  Tíkin er of góð í sér til að ýta þeim frá sér, finnst þeir hinn ágætasti félagsskapur en er greinilega orðin pínu pirruð á þessu sífellda totti.  Svo það var keypt "hjortetaksolie" og hún sett á hundinn í gær.... lyktin er hreint út sagt  ógeðsleg og fælir alla í burtu, kettirnir reyna að komast á spena en verða að gefast upp vegna lyktarinnar. Ætli tíkinni sé ekki flökurt líka?? Þvílík stækja, frábært, eða þannig.... ekki kannski akkúrat jólailmurinn sem maður sækist eftir innanhúss á þessum tíma árs.    En vonandi virkar þetta áfram þangað til þeir gefast alveg upp. 


Jólahasar

Jólahasarinn hér í DK er komin á fullt, enda komin desember.  Mér finnst erfitt að komast í jólaham því það er svo hlýtt og mikil rigning.  Væri alveg til í ærlega snjókomu og jafnvel smá skafrenning svo vegurinn teppist um tíma, svona 1-2 daga í miðri næstu viku.  Við erum nefnilega í óvanalega góðum málum varðandi jólagjafakaupin og erum þá vonandi búin að versla og senda allt sem á að fara frá okkur  (ef fer sem horfir).  Þá gætum við haft það huggulegt... með fulla stauka af kökum og konfekti sem á að fara í að framleiða um helgina.  Það væri ekki amalegt.  En það eru nú litlar líkur á því, það má alltaf láta sig dreyma.

'Eg og strákarnir fórum á stórskemmtilegt jólaball í Esbjerg 1.des.  Það voru víst um 60 manns sem allir tóku með sér kræsingar á borðið, rjómatertur, lummur, kleinur, skúffukökur og bakarísbrauð í bland.  Mjög fínt.  Svo var jólasveinninn virkilega hress og skemmtilegur, spilaði á gítar og allt!!  Hann var líka með alvöru jólaballsnammipoka.. skrjáfandi sellofan sem innihélt ísl. nammi.  Það voru allir mjög ánægðir með það.  'Eg fékk strákana mína með mér í nokkra hringi, létu sig hafa það,  en svo varð ég að fá Eigil lánaðan  restina af ballinu.   


Elding

Við lentum í þrumuveðri um daginn, enn einu sinni .  'I þetta sinn sló niður ansi nálægt, eiginlega fannst manni að eldingunni hefði slegið beint niður í húsið, blár blossinn og skruggan komu á sama tíma og öllu sló út..... og batterísdrifna eggjaúrið fór að hringja!!!   Það var við hliðina á skerminum við tölvuna (af hverju þar gæti einhver spyrt... en það er jú til að geta skipt tölvutímanum jafnt á milli fjölskyldumeðlima!!:-)   Skermurinn er ónýtur, prentarinn  og módemið út í tækjaskáp líka en talvan slapp...skil ekki hvernig þetta hangir saman.  Gamla uppþvottavélin úti í vaskahúsi gaf líka upp öndina sem og 2 hellur í eldavélinni.  Hitt virðist hafa sloppið.   Undarlegt hverng þetta hefur leitt út frá sér, farið í sumt en ekki annað.  Við þykjum hafa sloppið vel .... því húsið er náttúrulega fullt af rafmagnstækjum í sambandi allan sólarhringinn... og hefðu vel getað farið líka.  En við verðum líklega að fara að huga að einhverjum almennilegum eldingavörum, því þetta er ekki í fyrsta sinn sem við lendum í tjóni vegna eldinga.


Helgarferð

Vorum í helgarferð með vinafólki um helgina í SeaWest   Það var synt og rennt, spilað badminton, farið í keilu, göngutúr í sandhólunum, spiluð spil, borðað vel osfrv..  Virkilega fín helgi og allir skemmtu sér vel. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband