Nýtt ár!!

Gleðilegt nýtt ár!!   Við komust heil og höldnu inn í nýja árið.  Hér var frábært veður fyrir flugelda í gærkvöldi. Frost, heiðskýrt og stjörnubjart. Þar sem við vorum í heimsókn var mjög gott útsýni yfir nágrannabæjina svo við fengum aldeilis flotta flugeldasýningu.  Eftir langt og skemmtilegt kvöld var þó varasamt að keyra heim í hálkunni og í gegnum allt flugeldaruslið, sem lá út um allt á sveitavegunum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Guðrún Jóhannesdóttir, 2.1.2008 kl. 13:03

2 identicon

Gleðilegt ár elsku fjölskyldan mín og takk fyrir allt gamalt og gott. Nú er síðasti jóladagurinn og allir í startinu að skjóta upp restinni af flugeldunum. Súkkulaði og skonsur að venju á þessum degi á Bjarginu eftir útiveruna á þrettándabrennunni. Afmælisbarnið tekur ekki þátt í blysförinni en horfir á fréttir. Það er allt eins og það á að vera nema að það vantar ykkur Kveðja frá okkur.

mamma (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 17:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband