1.1.2008 | 15:50
Nýtt ár!!
Gleðilegt nýtt ár!! Við komust heil og höldnu inn í nýja árið. Hér var frábært veður fyrir flugelda í gærkvöldi. Frost, heiðskýrt og stjörnubjart. Þar sem við vorum í heimsókn var mjög gott útsýni yfir nágrannabæjina svo við fengum aldeilis flotta flugeldasýningu. Eftir langt og skemmtilegt kvöld var þó varasamt að keyra heim í hálkunni og í gegnum allt flugeldaruslið, sem lá út um allt á sveitavegunum.
Athugasemdir
Guðrún Jóhannesdóttir, 2.1.2008 kl. 13:03
Gleðilegt ár elsku fjölskyldan mín og takk fyrir allt gamalt og gott. Nú er síðasti jóladagurinn og allir í startinu að skjóta upp restinni af flugeldunum. Súkkulaði og skonsur að venju á þessum degi á Bjarginu eftir útiveruna á þrettándabrennunni. Afmælisbarnið tekur ekki þátt í blysförinni en horfir á fréttir. Það er allt eins og það á að vera nema að það vantar ykkur Kveðja frá okkur.
mamma (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 17:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.